Ákvörðun rússneskra stjórnvalda um að gera ekki lengur kröfu um að íslenskir flugrekendur sem vilja nota Síberíuflugleiðina haldi jafnframt uppi beinu áætlunarflugi til áfangastaðar í Rússlandi breytir engum áætlunum hjá Icelandair. Þetta segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við mbl.is. Ákvörðunin liðkar hins vegar fyrir áætlunarflugi til Asíu í nánustu framtíð.
Hingað til hafa skilmálar Rússa verið mjög strangir og þannig komið í veg fyrir að íslensk flugfélög gætu samið um notkun flugleiðarinnar. Fyrir helgi var hins vegar greint frá því að 8. nóvember hafi farið fram reglubundið samráð íslenskra og rússneskra stjórnvalda í Moskvu um tvíhliða viðskiptamál ríkjanna þar sem meðal annars samið var um notkun Síberíuflugleiðarinnar.
„Þetta hefur verið sameiginlegt verkefni í langan tíma. Það liggja ekki fyrir neinar áætlanir sem þetta hefur bein áhrif á en að sjálfsögðu liðkar þetta fyrir slíkum framtíðarflugum,“ segir Guðjón í samtali við mbl.is.
Þá segir hann að iðulega þegar rætt er um flug íslenskra flugfélaga til Asíu blasi við að Síberíuleiðin verði sú leið sem verði farin. „En þetta snýst alltaf um lagalega hluti og ekki síður kostnað og það liggur ekkert fyrir um það,“ segir Guðjón.
Ekkert formlegt ferli er því farið af stað við að skoða Síberíuflugleiðina sem mögulega flugleið. „Þetta hjálpar til við að gera þetta að möguleika, en að öðru leyti þá breytir þetta ekki neinum áætlunum akkúrat núna,“ segir Guðjón.
Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air, tekur í sama streng og segir í samtali við mbl.is að flugfélagið muni fyrst um sinn einbeita sér að áætlunarflugi til Indlands, en áætlunarflug WOW air til Nýju Delí hefst 6. desember næstkomandi.