Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Meniga hefur samið við United Overseas Bank (UOB), þriðja stærsta banka Suðaustur-Asíu, um að innleiða netbankalausnir Meniga í Singapore, Taílandi, Indónesíu, Víetnam og Malasíu.
Meniga og UOB tilkynntu um samstarfið opinberlega á ráðstefnunni Singapore Fintech Festival.
Með lausnum Meniga geta viðskiptavinir UOB haldið utan um fjármál sín með einföldum hætti í snjallsímaappi og netbanka. UOB er fyrsti viðskiptavinur Meniga í Asíu en bankinn er með yfir 500 útibú í 19 löndum, að því er Meniga greinir frá.