Fjármálaráðuneytið vonast til þess að skýrsla um efni hvítbókar um framtíðarsýn og stefnu fyrir fjármálakerfið á Íslandi verði kynnt í næstu viku. Útgáfa hvítbókarinnar hefur dregist.
Þetta kemur fram í svari upplýsingafulltrúa fjármálaráðuneytisins við fyrirspurn mbl.is.
Í tilkynningu fjármálaráðuneytisins frá því í febrúar kom fram að stafshópur yrði skipaður sem vinna ætti hvítbók um áðurnefnt efni. Vinnan ætti að vera í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.
Þar kom enn fremur fram að starfshópnum væri falið að ljúka vinnu sinni fyrir 15. maí með skýrslu til fjármála- og efnahagsráðherra. Nú er vonast til þess að skýrslan verði tilbúin í næstu viku.