Tekjur WOW air á tímabilinu janúar til september námu 501 milljón dala, eða tæpum 62 milljörðum og jukust þær um 31%, miðað við á sama tíma í fyrra.
Þetta kemur fram í uppgjöri sem var birt á vefsíðu WOW air.
Tapið á tímabilinu var 33,6 milljónir dala, eða rúmir 4 milljarðar króna, samanborið við 13,5 milljónir dala, eða um 1,7 milljarða króna, á sama tíma í fyrra.
Eiginfjárhlutfall félagsins nam 7% í lok september.