Íslenski flugleitarvefurinn Dohop var valinn besti flugleitarvefurinn (e. World’s Leading Flight Comparison Website 2018) við hátíðlega athöfn hjá World Travel Awards í Lissabon sl. laugardag. Er þetta þriðja árið í röð sem Dohop hlýtur þessa viðurkenningu.
Fram kemur í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu að samkeppnin hafi verið hörð að vanda, enda séu verðlaunin í hópi þeirra virtari sem sem veitt séu innan ferðaþjónustuiðnaðarins. Keppti Dohop við fyrirtæki á borð við Skyscanner og Kayak um verðlaunin, en auk Dohop hlutu fyrirtæki á borð við Expedia, AirBnb og Uber einnig verðlaun.
„Þessi verðlaun eru ákveðin staðfesting á því góða starfi sem hópurinn hefur unnið í ár. Við höldum áfram að gera okkar besta við að hjálpa fólki að gera verðsamanburð á flugi og þriðja árið í röð fáum við viðurkenningu fyrir það,” er haft eftir Davíð Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Dohop, í tilkynningunni.