Sala á jólabjór í verslunum Vínbúðarinnar dróst saman um 13% dagana 15. nóvember til 4. desember miðað við á sama tímabili í fyrra.
Alls seldust 279.242 bjórar á tímabilinu en á sama tíma í fyrra seldust 321.516 bjórar. Þetta kemur fram í upplýsingum frá Sigrúnu Ósk Sigurðardóttur, aðstoðarforstjóra Vínbúðarinnar.
Um 60 tegundir af jólabjór voru í boði þegar salan hófst 15. nóvember.
Tuborg Julebryg er langvinsælasti jólabjórinn í ár, samkvæmt tölum Vínbúðarinnar, og nemur hlutfall hans af heildarsölunni um 45 prósentum. Alls seldust 126.359 slíkir bjórar á tímabilinu. Næstur á eftir kemur Víking jólabjór með 10 prósent af heildarsölunni og Jólagull er svo í þriðja sæti með 7,2 prósent.