Greinargerð Seðlabankans um mál Samherja verður ekki skilað fyrr en á næsta ári, en upphaflega átti að skila henni 7. desember. Fram kemur á vefsíðu Seðlabankans að bankaráð bankans hafi falið Gylfa Magnússyni, formanni bankaráðsins, að rita forsætisráðherra og greina henni frá því að frekari frest þurfi til að svara erindinu.
Kemur fram að vonir standa til þess að hægt verði að ganga frá svarinu í upphafi nýs árs.
Forsætisráðherra óskaði eftir greinargerðinni 12. nóvember og átti hún að ná til mála Samherja frá þeim tíma sem rannsókn hófst á meintum brotum á reglum um gjaldeyrismál.
Hæstiréttur staðfesti nýlega dóm héraðsdóms um að fella úr gildi ákvörðun Seðlabanka Íslands frá 1. september 2016 um að sekta Samherja um 15 milljónir króna í vegna meintra brota á reglum um gjaldeyrismál.
Hefur Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, gagnrýnt Seðlabankann og Má Guðmundsson seðlabankastjóra mikið vegna málsins og kallað eftir því að Már verði rekinn.