Ragnhildur Geirsdóttir er hætt sem aðstoðarforstjóri WOW air en hún hefur gegnt stöðunni síðustu 18 mánuði. Í tilkynningu á vef WOW air segir að Ragnhildur muni taka við stöðu forstjóra Reiknistofu bankanna síðar í mánuðinum.
Ragnhildur hefur víðtæka reynslu úr íslensku viðskiptalífi en áður en hún hóf störf hjá WOW air gegndi hún stöðu framkvæmdastjóra rekstrar og upplýsingatækni hjá Landsbankanum hf. Þar áður var hún forstjóri Promens hf. auk þess sem hún var framkvæmdastjóri Rekstrarstýringar og forstjóri Flugleiða hf./FL Group hf. Ragnhildur hefur einnig setið í fjölmörgum stjórnum fyrirtækja á Íslandi og erlendis.
Ragnhildur er verkfræðingur og viðskiptafræðingur að mennt. Hún lauk BS-prófi í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands 1995, MS-prófi í iðnaðarverkfræði frá Háskólanum í Wisconsin árið 1996 og MS-prófi í viðskiptafræði frá sama skóla 1998.
Ragnhildur tekur við af Friðriki Snorrasyni sem sagði upp störfum á síðasta ári eftir að hafa starfað hjá RB í tæp átta ár. Í tilkynningu frá RB er haft eftir Sævari Frey Þráinssyni, stjórarformanni félagsins, að hann fagni komu Ragnhildar. „Hún er öflugur leiðtogi með víðtæka reynslu sem mun nýtast RB á þeim spennandi tímum sem eru framundan,“ er haft eftir honum.