Stýrivextir Seðlabankans haldast óbreyttir

Stýrivextir verða áfram 4,5%.
Stýrivextir verða áfram 4,5%. mbl.is/Golli

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 4,5%, að því er fram kemur í tilkynningu frá bankanum.

Stefnir í minnsta hagvöxt síðan 2012

Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans sem birt er í febrúarhefti Peningamála er gert ráð fyrir að töluvert hægi á hagvexti í ár og að hann verði 1,8%. Þetta er um eitt prósentu minni vöxtur en bankinn gerði ráð fyrir í nóvember og gangi það eftir yrði það minnsti hagvöxtur sem mælst hefur frá árinu 2012. Hægari vöxtur stafar einkum af samdrætti í ferðaþjónustu. Horfur eru því á að spenna í þjóðarbúskapnum minnki hraðar en áður var talið.

Verðbólga jókst eftir því sem leið á síðasta ár og mældist 3,7% í desember. Áhrif hækkunar innflutningsverðs vegna gengislækkunar krónunnar á haustmánuðum síðasta árs vega þar þyngst.

Útlit fyrir aukna verðbólgu

Í tilkynningu bankans segir jafnframt að þótt verðbólga hafi minnkað í 3,4% í janúar og gengi krónunnar hækkað frá desemberfundi peningastefnunefndar eru horfur á að verðbólga aukist fram eftir ári og verði yfir markmiði fram á seinni hluta næsta árs.

Verðbólguvæntingar markaðsaðila og verðbólguálag á skuldabréfamarkaði hafa lækkað frá desemberfundinum. Taumhald peningastefnunnar, eins og það mælist í raunvöxtum Seðlabankans, hefur því aukist á ný.

Peningastefnan mun á næstunni ráðast af samspili minni spennu í þjóðarbúskapnum, launaákvarðana og þróunar verðbólgu og verðbólguvæntinga.

„Peningastefnunefnd ítrekar að hún hefur bæði vilja og þau tæki sem þarf til að halda verðbólgu og verðbólguvæntingum við markmið til lengri tíma litið. Það gæti kallað á harðara taumhald peningastefnunnar á komandi mánuðum. Aðrar ákvarðanir, einkum á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum, munu skipta miklu um hvort svo verður og hafa áhrif á hversu mikill fórnarkostnaður verður í lægra atvinnustigi,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK