Mörg fyrirtæki hafa sýnt Siðferðisgáttinni, nýrri þjónustu á vegum ráðgjafafyrirtækisins Hagvangs, áhuga.
Ætlunin er að bjóða starfsmönnum fyrirtækja og stofnana sem verða fyrir óæskilegri háttsemi á vinnustað upp á ákveðinn farveg og þjónustu.
Mun Hagvangur starfa sem óháður ráðgjafaraðili í þessum málum í samstarfi við stjórnir þeirra fyrirtækja sem nýta sér þjónustuna sem einnig getur virkað sem ákveðinn gæðastimpill og vitnisburður um að þau beri hag starfsmanna fyrir brjósti, að því er fram kemur í ViðskiptaMogganum í dag.