Víðir Smári Petersen lögmaður á Lex segir í aðsendri grein í ViðskiptaMogganum að velta megi fyrir sér hvort innviðagjald, sem Reykjavíkurborg innheimtir í samningum við lóðarhafa sem hafa í hyggju þróun og uppbyggingu á lóðum sínum, sé viðbótarskattlagning, án lagaheimildar.
Vísar hann þar til þess að gjaldinu sé m.a. ætlað að standa undir gerð nýrra gatna, en gatnagerðargjöld séu í lögum skilgreind sem skattur.