Hlutabréf í Icelandair lækkuðu um 9,66% í viðskiptum í Kauphöllinni í dag, en mest fóru þau niður um 10,6% áður en þau hækkuðu aðeins á ný. Samtals voru viðskipti með bréf félagsins fyrir rúmlega 300 milljónir króna.
Um helgina komu fréttir um viðræður WOW air og Indigo partners, þar sem fram kom meðal annars að Indigo hygðist jafnvel setja meira fjármagn í félagið en upphaflega var áætlað. Þá hafa fréttir sem tengjast hrapi Boeing 737 MAX8 flugvélar Ethiopian airlines í Kenýa, skömmu eftir flugtak í gær, einnig haft áhrif á verð flugfélaga í dag.
Icelandair hefur tryggt sér kauprétt á samtals sextán Boeing 737 MAX8- og MAX9-vélum. Af þeim eru níu 737 MAX8-vélar sem taka 160 farþega í sæti og sjö 737 MAX9-vélar sem taka 178 farþega í sæti. Félagið hefur þegar tekið þrjár slíkar vélar í notkun.
Gengi hlutabréfa Icelandair stendur nú í 7,48 krónum á hlut.