Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Icelandair Group, hefur efasemdir um að kröfuhafar WOW air, eins og flugvélaleigusalar, séu tilbúnir að breyta kröfum sínum yfir í hlutafé. Jón Karl sagði í viðtali við þau Huldu og Loga á K100 síðdegis að dagurinn í dag væri dagur ákvarðana hjá WOW air.
„Það þarf bara að klára þetta núna,“ sagði Jón Karl. Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air, hefur ekki rætt við fjölmiðla í dag en hann reynir til þrautar að bjarga flugfélaginu frá gjaldþroti í kjölfar þess að slitnaði upp úr viðræðum við Icelandair Group í gærdag.
Samkvæmt tilkynningu frá WOW air sem send var út í gærkvöldi vinnur félagið nú að því að ná samkomulagi við meirihluta lánardrottna sinna um að skuldum félagsins verði að stórum hluta umbreytt í hlutafé og að sömu aðilar tryggi félaginu fjármagn til rekstrarins uns það nái „sjálfbærum rekstri til framtíðar“ eins og það er orðað í tilkynningunni. Tvær flugvélar WOW air voru kyrrsettar í dag.
Jón Karl segir að samningaviðræður við flugvélaleigufyrirtæki, flugvelli og eldsneytisbirgja séu ekki einfaldar, en hann hefur reynslu af samningaviðræðum við flugvélaleigusala.
„Sú tilhugsun að þeir séu tilbúnir að breyta einhverju hlutafé er svolítið galin því að það er fordæmi sem þeir forðast eins og heitan eldinn. Þeir eru með flugvélar í leigu úti um allan heim, hjá alls kyns fyrirtækjum í alls kyns ríkjum og þjóðum og það hefur aldrei verið hægt að ræða við þá að það sé hægt að breyta þessu. En á meðan von er þá vonum við að þetta klárist því hitt er ansi leiðinleg mynd sem dregst upp ef þetta lokar,“ sagði Jón Karl.
Hann segir jafnframt að mikilvægt sé að framhald WOW air skýrist sem fyrst. „Annaðhvort verður það að gerast eða að menn vinni í því að stoppa þetta, það er ekkert flókið, það er ekki hægt að halda svona áfram endalaust.“
Jón Karl sagðist hins vegar taka ofan fyrir Skúla. „Hann heldur alltaf áfram og það virðist alltaf vera ljós við endann á göngunum og það er virðingarvert.“
Viðtal Loga og Huldu við Jón Karl má sjá og heyra í heild sinni hér að neðan: