Forsætisráðuneytinu hafa borist 16 umsóknir um embætti seðlabankastjóra sem auglýst var laust til umsóknar 20. febrúar en frestur til umsóknar rann út á miðnætti.
Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins.
Þar kemur fram að hæfnisnefnd verði skipuð til að fara yfir umsóknirnar og meta hæfni þeirra sem sóttu um. Nýr seðlabankastjóri verður skipaður 20. ágúst næstkomandi. Seðlabankastjórar eru skipaðir til fimm ára í senn og einungis má skipa þann sama tvisvar sinnum.
Arnór Sighvatsson, ráðgjafi seðlabankastjóra
Ásgeir Jónsson, dósent og forseti hagfræðideildar Háskóla Íslands
Ásgeir Brynjar Torfason, lektor við Háskóla Íslands
Benedikt Jóhannesson, fyrrv. fjármála- og efnahagsráðherra
Gunnar Haraldsson hagfræðingur
Gylfi Arnbjörnsson hagfræðingur
Gylfi Magnússon dósent
Hannes Jóhannsson hagfræðingur
Jón Danielsson prófessor
Jón G. Jónsson, forstjóri bankasýslu ríkisins
Katrín Ólafsdóttir lektor
Salvör Sigríður Jónsdóttir nemi
Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri
Sturla Pálsson, framkvæmdastjóri markaðs-, viðskipta- og fjarstýringar í Seðlabanka Íslands
Vilhjálmur Bjarnason lektor
Þorsteinn Þorgeirsson, sérstakur ráðgjafi á skrifstofu seðlabankastjóra
Fréttin hefur verið uppfærð. Upphaflega var greint frá því að fimmtán hafi sótt um stöðu seðlabankastjóra en í uppfærðri fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu kemur fram að umsóknirnar eru sextán. Nafn Katrínar Ólafsdóttur vantaði á upphaflega listann.