WOW air er á lokametrunum að klára hlutafjáraukningu við nýjan eigendahóp á félaginu. Allt flug hefur verið stöðvað þangað til þeir samningar verða kláraðir. Nánari upplýsingar verða gefnar kl. 9. Félagið þakkar farþegum fyrir stuðninginn og biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta veldur. Þetta kemur fram í tilkynningu sem WOW air sendi frá sér í nótt.
Þetta þýðir að engar vélar WOW eru á leiðinni til landsins frá Bandaríkjunum né Kanada þennan morguninn og öllu flugi á vegum WOW frá Íslandi þennan morguninn aflýst, að því er fram kemur á vef Isavia.
Á vef Isavia kemur fram að öllu flugi WOW air hefur verið aflýst um Keflavíkurflugvöll í dag en sex vélar áttu að koma frá Bandaríkjunum og Kanada snemma í morgun. Það þýðir að Evrópuflug WOW fer ekki af stað að nýju frá Íslandi fyrr en þær koma til Íslands.
Á vefnum Flight Global kemur fram að farþegar sem áttu bókað flug með WOW air í dag eiga að geta bókað sig í flug með félaginu síðar eða að fá að fullu endurgreitt.