Hagkerfið kyrrsett

mbl.is/Eggert

Eftir sterkan vöxt árið 2018 er útlit fyrir að eitt lengsta hagvaxtartímabil Íslandssögunnar líði undir lok á þessu ári. Greiningardeild Arion banka reiknar með að landsframleiðslan dragist saman um 1,9% í ár, fyrst og fremst vegna útflutningssamdráttar.

Samdrátturinn stendur stutt yfir og spáir bankinn að hagkerfið taki að vaxa á nýjan leik á næsta ári, þó ekki af sama krafti og bankinn hafði áður reiknað með. Þetta kemur fram í efnahagshorfum bankans fyrir árin 2019-2021 sem ber yfirskriftina Hagkerfið kyrrsett.

Þá segir, að heimilin séu nú þegar farin að stíga varlega til jarðar líkt og endurspeglist í kortaveltutölum og aukinni svartsýni. Greiningardeildin spáir að einkaneyslan, sem að undanförnu hafi verið dráttarklár hagvaxtar, dragist lítillega saman á þessu ári, þrátt fyrir spá um launahækkanir umfram það sem samræmist verðstöðugleika.

„Við teljum að stígandi atvinnuleysi samhliða fækkun ferðamanna, og veikari króna vegi þyngra í neyslu heimilanna en kaupmáttaraukningin. Þrátt fyrir fækkun ferðamanna, loðnubrest og launahækkanir reiknum við með að krónan haldist tiltölulega stöðug og að aðlögun hagkerfisins fari í meira mæli en áður í gegnum vinnumarkaðinn. Verðbólgan stígur þar af leiðandi ekki jafn mikið og ella, sem getur veitt Seðlabankanum tækifæri til að lækka vexti,“ segir greiningardeild bankans.

Grafík/Arion banki
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK