Innköllun vegna gjaldþrots WOW air var birt í Lögbirtingablaðinu í dag, en þar er kröfuhöfum gefinn frestur til mánaðamótanna júlí og ágúst til að gera kröfu í búið.
Skiptafundur verður svo haldinn 16. ágúst á hótel Hilton Nordica. Eins og áður hefur komið fram voru lögmennirnir Sveinn Andri Sveinsson og Þorsteinn Einarsson skipaðir skiptastjórar búsins.