Skúli Mogensen, stofnandi og fyrrverandi forstjóri WOW air, fundaði með fulltrúum eigenda KEA-hótela í vikunni um stofnun nýs flugfélags.
Frá þessu er greint í kvöldfréttum RÚV.
Þar segir að þetta sé samkvæmt heimildum RÚV. Bent er á að bandaríska fjárfestingafélagið PT Capital í Alaska eigi helming í félaginu K acqusition sem á KEA-hótelin, sem eru ellefu. PT Capital eigi einnig stærstan hlut í Nova.
Greint var frá því í síðustu viku að Skúli hygðist endurvekja rekstur flugfélagsins. Þá kom fram að Skúli og aðrir lykilstarfsmenn WOW air leiti um þessar mundir fjármögnunar upp á 40 milljónir Bandaríkjadala, eða sem nemur um 4,8 milljörðum króna, til að standa straum af kostnaði við upphaf rekstursins.