Arion banki hefur sent frá sér afkomuviðvörun vegna dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í dag þar sem Valitor var dæmt til að greiða Sunshine Press Productions (SSP) og Datacell, rekstrarfélagi Wikileaks, 1,2 milljarða króna í bætur.
Fram kemur í tilkynningu Arion banka til Kauphallarinnar að dómurinn hafi neikvæð áhrif á samstæðu bankans á fyrsta ársfjórðungi sem nemi 600 milljónum króna.
Þar segir enn fremur að þegar gjaldþrot WOW Air og sala bankans á eignarhlut í Farice bætist við nemi áhrif á afkomu bankans á fyrsta ársfjórðungi um 1,2 milljörðum króna.
Áhrif dómsins á afkomu bankans eru áætluð lægri en ella vegna samkomulags sem gert var þegar Arion banki keypti eignarhlut Landsbankans í Valitor Holding hf. árið 2014 en í því voru ákvæði um hlutdeild seljanda í því tjóni sem Valitor gæti orðið fyrir í tengslum við áðurnefnt mál.