Hagnaður bandaríska flugvélaframleiðandans, Boeing, dróst saman um 13,2% á fyrsta ársfjórðungi frá fyrra ári og nam 2,1 milljarði Bandaríkjadala. Á ársfjórðungnum voru allar 737 MAX þotur frá fyrirtækinu kyrrsettar í kjölfar tveggja flugslysa sem kostuðu fleiri hundruð farþega lífið.
Tekjur Boeing drógust saman um 2% og voru 22,9 milljarðar dala enda engar 737 MAX þotur afhentar undanfarnar vikur. Boeing hefur ákveðið að draga til baka fyrri spá um afkomu ársins og vísar til óvissu í tengslum við 737 MAX.
10. mars fórst farþegaþota Ethiopian Airlines og í október þota Lion Air. Samanlagt létust 346 í þessum flugslysum. Unnið er að endurskoðun á sjálfstýrðum stjórnkerfum Boeing 737 MAX þotunnar en vinna við endurbætur á MCAS-kerfinu hófst í kjölfar flugslyss Lion Air þotunnar. Boeing hefur farið í yfir 135 tilraunaflug á 737 MAX þotum við endurskoðunina og starfar með alþjóðlegum eftirlitsaðilum og flugfélögum að endurbótum.