Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur, þar sem Valitor var dæmt til að greiða Sunshine Press Productions (SSP) og Datacell, rekstrarfélagi Wikileaks, 1,2 milljarða króna í bætur fyrir að hafa lokað greiðslugátt þeirra fyrir Wikileaks í 617 daga, sætir furðu.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Valitor eftir að dómur var kveðinn upp í dag.
Þar segir að SPP hafi aldrei átt í neinu viðskiptasambandi við Valitor. Auk þess hafi SPP aldrei haft nema hverfandi tekjur en hafi engu að síður gert margra milljarða dómkröfur á hendur fyrirtækinu.
„Valitor hefur frá upphafi bent á að enginn grundvöllur sé fyrir kröfugerð SPP en meirihluti héraðsdóms kemst að annarri niðurstöðu í dag. Hins vegar skilaði einn þriggja dómara séráliti og vildi sýkna Valitor alfarið enda hafi ekkert tjón verið sannað,“ segir í tilkynningunni.
Valitor fer yfir niðurstöðu dómsins og mun væntanlega áfrýju málinu til Landsréttar.