Valitor var í dag gert að greiða Sunshine Press Productions (SSP) og Datacell, rekstrarfélagi Wikileaks, 1,2 milljarða króna í bætur fyrir að hafa lokað greiðslugátt þeirra fyrir Wikileaks í 617 daga.
Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur en Vísir greindi fyrst frá niðurstöðu dómsins. Valitor er gert að greiða SSP 1140 milljónir króna og Datacell 60 milljónir króna.
Málið á rætur að rekja til lokunar Valitor árið 2011 á greiðslugátt til Datacell sem safnaði greiðslum fyrir Sunshine Press Productions, fyrirtækið að baki Wikileaks.
Gáttin var alls lokuð í 617 daga og skaðabótakrafan byggir á tjóninu sem fyrirtækin urðu fyrir á meðan gáttin var lokuð. Krafan byggir á útreikningum Sigurjóns Þ. Árnasonar, sem taldi tjónið vera á bilinu frá 1,5 milljarði króna til átta milljarða.
Tveir dómarar töldu hafið yfir vafa að fyrirtækin höfðu orðið fyrir miklu tjóni. Einn dómari skilaði séráliti en hann taldi að Datacell og SPP hefðu ekki fært nægilegar sönnur fyrir fjártjóninu og því ætti að sýkna Valitor.
Sveinn Andri sagði að niðurstaða vekti upp blendnar tilfinningar. Hann sagði að það væri jákvætt að dómur hefði komist að niðurstöðunni að um væri að ræða bótaskylt brot.
Hann sagði að það væri verra að mati dómskvaddra matmanna væri ýtt til hliðar en að þeirra matið var tjón fyrirtækjanna tveggja 3,2 milljaðar.
„Það má segja að það séu plúsar og mínuar í þessu,“ segir Sveinn. Hann mun nú fara yfir dóminn og segir að það komi vel til að greina að áfrýja niðurstöðunni til Landsréttar.