Fullt var út úr dyrum á hádegisfundi í Norræna húsinu í dag er Stefán Einar Stefánsson, fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu, kynnti helstu efnistök bókar sinnar um flugfélagið WOW air.
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar flutti einnig erindi um áhrif WOW air á uppgang og síðar meir samdrátt ferðaþjónustunnar.
Titill bókarinnar er: WOW - Ris og fall flugfélags, en það er Vaka-Helgafell sem gefur bókina út.