Samkvæmt heimildum mbl.is hefur Stefán Rafn Sigurbjörnsson verið ráðinn upplýsingafulltrúi Seðlabanka Íslands. Stefán mun því láta af störfum sem fréttamaður Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Alls sótti 51 um starfið.
Stefán Jóhann Stefánsson mun áfram gegna starfi ritstjóra Seðlabankans.