Nú þegar leyfi FME er í höfn má Monerium gefa út rafeyri í íslenskum krónum fyrir bálkakeðjur.
Með því opnast fyrir möguleikann á að nýta þá áhugaverðu tækni sem orðið hefur til í kringum sýndarfé á borð við bitcoin og ethereum, nema hvað viðskiptin geta nú farið fram með raf-krónum, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Á næstu mánuðum mun Monerium sækja um skráningu víðar í Evrópu og „bálkakeðjuvæða“ gjaldmiðla fleiri þjóða. Segja má að þetta brúi bilið á milli gamla fjármálaheimsins og hins nýja hliðstæða en aðskilda fjármálaheims sem orðið hefur til í kringum sýndarfé.
Í umfjöllun Morgunblaðsins um Monerium, í blaðinu í dag, gætti ónákvæmni þar sem orðið „rafmynt“ var notað á tveimur stöðum en réttara hefði verið að nota orðið „rafeyrir".
Um tvö ólík hugtök er að ræða þar sem rafmynt vísar til enska orðsins „cryptourrency“ en rafeyrir er þýðing á orðinu „e-money“ og er m.a. skilgreint í lögum nr. 17/2013 um útgáfu og meðferð rafeyris.