Fjárfestingasjóðurinn Mousse Partners Limited, sem stýrt er af fjölskyldunni sem á tískuhúsið Chanel, hefur fest kaup á tæplega helmingshlut Sjóklæðagerðarinnar 66° Norður fyrir 30 milljónir evra eða um 3,7 milljarða íslenskra króna.
Greint var frá því í júlí í fyrra að bandarískur fjárfestingasjóður hefði keypt hlutinn í 66° Norður en ekki var þá greint frá því hver kaupandinn var.
Busienss of Fashion birti fyrr í dag frétt þar sem fram kom að umræddur kaupandi væri Mousse Partners í New York, að því er fram kemur í umfjöllun RÚV.
66° Norður hefur verið rekið með tapi síðustu ár og segir Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri fyrirtækisins, í samtali við RÚV að verið sé að vinna í því að markaðssetja vörumerkið á erlendum markaði. Það að taka inn fjársterkan minnihlutaeiganda sé mikilvægt skref.