Þurrvörur, brauð, kex, sælgæti og snakk hækkaði mest í verði í flestum verslunum á átta mánaða tímabili frá hausti 2018 fram á sumar 2019. Verðhækkanir mátti finna í öllum þeim vöruflokkum sem skoðaðir voru í verðkönnun ASÍ.
Þar kemur fram að verð hækkaði oftast í Hagkaup eða í 38 tilvikum af 49 en sjaldnast í Iceland eða í 9 tilvikum af 49. Þá voru verðhækkanir einnig mestar í Hagkaup.
Þetta sýna gögn verðlagseftirlits ASÍ sem safnað var dagana 10. október 2018 og 3. júní 2019. Þær verslanir sem samanburðurinn nær til eru Bónus, Krónan, Hagkaup, Nettó, Fjarðarkaup, Iceland og Kjörbúðin.
Mestar verðhækkanir, á þeim vörum sem verðlagseftirlit ASÍ skoðaði, voru hjá Hagkaup en mjög miklar hækkanir voru þar í öllum vöruflokkum. Þannig hækkaði verð oftast í Hagkaup eða í 38 tilvikum af 49 og í 25 tilvikum af 49 voru mestu verðhækkanirnar í Hagkaup.
Sjaldnast hækkaði verð í Iceland eða í 9 tilvikum af 49. Í öðrum verslunum hækkaði verð í um 40% tilfella eða í 21 tilvikum af 49 í Bónus, 22 tilvikum í Krónunni, 23 tilvikum í Nettó, 20 tilvikum í Fjarðarkaupum og 20 tilvikum í Kjörbúðinni.
Samanburðurinn nú sýnir m.a. að Lífskorn, brauð með tröllahöfrum og chia-fræjum frá Myllunni, hækkaði í öllum verslunum nema Iceland um 4-15%. Hækkunin var lang mest hjá Hagkaup, 15%. Ömmu flatkökur hækkuðu um 17% í Hagkaup sem er mesta einstaka hækkunin á brauðmeti og 7% í Krónunni en ekkert í Nettó, Fjarðarkaupum og Kjörbúðinni. Flatkökurnar fengust ekki í Bónus og Iceland.
Pylsubrauð frá Myllunni hækkaði í öllum verslunum þar sem það fékkst. Mest var hækkunin 14% í Nettó, Kjörbúðinni og Hagkaup, 8% í Fjarðarkaupum, 5% í Krónunni og 4% í Iceland. Þá hækkaði Crawfords vanilllukex um 9-14%, mest um 14% í Hagkaup og Kjörbúðinni og 13% í Nettó. Doritos ostasnakk hefur hækkað í fimm af sjö búðum um 5-30%. Hækkunin nam 5% í Bónus, Krónunni og Kjörbúðinni, 13% í Fjarðarkaupum og 30% í Hagkaup.
Drykkjarvörur hækka einnig í mörgum tilvikum. Sem dæmi má nefna að verð á Senseo classic kaffipokum hækkaði um 3-13%. Mest var hækkunin hjá Fjarðarkaupum um 13%, 10% hjá Hagkaup, 8% hjá Nettó , 5% hjá Bónus og 3% hjá Krónunni. Kaffipokarnir hækkuðu ekkert í Iceland og voru ekki til í Kjörbúðinni. . Þá hækkaði verð á Melroses te (25 pokar) um 27% í Hagkaup, 15% í Kjörbúðinni, 6% í Bónus og 1% í Krónunni. Tepokarnir hækkuðu ekkert í Iceland og Fjarðarkaup og voru ekki til í Nettó