Arion banki hf. hefur samið við dreifðan hóp fjárfesta um kaup þeirra á öllum hlut bankans í Stoðum hf. Arion banki hefur haft hlutinn, sem nam um 19% af útistandandi hlutafé Stoða, til sölu um alllangt skeið enda um eign í óskyldum rekstri að ræða. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Stoðir eru fjárfestingarfélag og nema eignir félagsins um 23 milljörðum króna. Helstu eignir Stoða eru eignarhlutir í Símanum hf., TM hf. og Arion banka.