Tölvutek opnar verslanir sínar á ný í Reykjavík og á Akureyri, en fyrirtækið er nú dótturfélag Origo. Verður áherslan sem fyrr á vandaðan tölvubúnað og góð þjónusta.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Tölvutek á Facebook, en tilkynnt var um gjaldþrot fyrirtækisins í lok júní.
Stefnt er að opnun verslana Tölvuteks í Reykjavík og á Akureyri innan fárra vikna og að því er segir í færslu Tölvuteks verður „að sjálfsögðu“ tekið við gjafakortum, auk þess sem unnið er að samningum við alla birgja Tölvuteks til að tryggja ábyrgð á búnaði.
„Með aðkomu Origo að Tölvutek opnast fjöldi nýrra tækifæra til að gera enn betur og [hlökkum við] til að opna verslanir fljótlega með frábærum opnunartilboðum.“