Gunnlaugur Snær Ólafsson
Hægt er að útiloka að Indigo Partners hafi verið kaupandi eigna úr þrotabúi WOW air. Talsmaður fyrirtækisins segir í skriflegu svari við fyrirspurn mbl.is að félagið hafi ekki keypt nokkra eign úr búi WOW.
Indigo sýndi því áhuga að festa kaup á WOW air fyrir fall félagsins, en slitnaði upp úr viðræðum.
Margar sögur fara um mögulega kaupendur allra eigna úr búi WOW air. Þá sagði Viðskiptablaðið frá því í dag að heimildir þess hermdu að Michelle Ballarin og félag hennar Oasis Aviation Group hafi verið kaupandinn.