Stjórn Lífeyrðissjóðs verzlunarmanna (LV) ákvað í gær að lækka fasta óveðrtryggða vexti fasteignalána sjóðsfélaga úr 6,12% í 5,14%, að því er fram kemur í tilkynningu á vef lífeyrissjóðsins.
Breytingin tók gildi í gær og á við um ný lán sem veitt eru frá og með gærdeginum.
Stjórn sjóðsins tilkynnti 24. maí að hækka breytilega vexti verðtryggðra sjóðfélagalána úr 2,06% upp í 2,26%, en tveimur dögum fyrr hafði Seðlabanki Íslands lækkað stýri vexti um hálft prósentustig.
Ákvörðunin var harðlega gagnrýnd og samþykkti stjórn VR um miðjan júní að umboð stjórnarmanna hjá sjóðnum sem sátu fyrir hönd verkalýðsfélagsins yrði afturkallað.