Neytendasamtökin fara fram á að farþegar Icelandair, sem neyðst hafa til að fljúga með staðgengdarflugvélum félagsins, fái hlutdeild í væntanlegum bótum sem Boeing greiðir félaginu vegna kyrrsetningar á 737 MAX-vélunum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Neytendasamtökunum, en þar segir að farþegar sem fljúgi með staðgengdarflugvélum Icelandair njóti ekki þeirra þæginda sem Icelandair stæri sig af í auglýsingum.
„Að sama skapi hvetja Neytendasamtökin alla félagsmenn sem hafa flogið með lággæðaflugvélum Icelandair að geyma brottfararspjöld sín og kvittun fyrir kaupum, komi til þess að samtökin sæki bætur til Icelandair.“