Stefán Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri VR, hefur tekið við formennsku í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna af Ólafi Reimari Gunnarssyni. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef sjóðsins.
Stjórn sjóðsins kom saman til fundar í gær og skipti þá með sér verkum, en fjórir nýir fulltrúar skipaðir af VR tóku sæti í stjórninni á fundinum. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, verður áfram varaformaður stjórnar.
Fram hafði komið í umfjöllunum Kjarnans og Fréttablaðsins að áformað væri að Guðrún Johnsen, einn fjögurra nýrra stjórnarmanna VR hjá sjóðnum, myndi veita stjórninni formennsku, en það varð ekki niðurstaðan.
Fjórir nýir fulltrúar koma hafa tekið sæti í stjórninni fyrir hönd VR, en stéttarfélagið ákvað að skipta fyrri stjórnarmönnum sínum út vegna óánægju stéttarfélagsins með hækkun vaxta á einum flokki neytendalána sem sjóðurinn býður upp á.
Þá tilnefna Kaupmannasamtök Íslands einnig nýjan fulltrúa í stjórnina, en Benedikt K. Kristjánsson, fulltrúi samtakanna í stjórninni, féll frá fyrr í sumar.
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna er nú svo skipuð: