Ógætileg ummæli fyrir mann í þessari stöðu

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir í samtali við mbl.is að ummæli Gylfa Zoëga, prófessors í hagfræði og fulltrúa í peningastefnunefnd Seðlabankans, um Icelandair hafi verið ógætileg fyrir mann í hans stöðu. Gylfi var gestur á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í morgun, ásamt Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra, þar sem skýrsla peningastefnunefndar fyrir fyrri hluta árs 2019 var til umræðu.  

Sagði Gylfi m.a. á fundinum að efnahagshremmingar ferðaþjónustunnar væru hættulegar og það þyrfti að fylgjast með Icelandair. „Hvenær verður eigið fé þar komið á hættu­legt stig? Það má ekki veðja þjóðarbú­inu á að Icelanda­ir fái full­ar bæt­ur frá Boeing,“ sagði Gylfi.

Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, á …
Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, á fundinum í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Undirbúin fyrir áföllin

„Okkur finnst þetta nokkuð ógætileg ummæli fyrir mann sem situr í peningastefnunefnd,“ segir Bogi og bætir við, eins og hann hefur áður lýst, að lausafjárstaða félagsins sé sterk, og eiginfjárstaða líka. „Við höfum rekið þá stefnu að vera með sterkan efnahagsreikning vegna þess að við vitum að í flugrekstri koma upp atriði sem við höfum ekki alveg stjórn á, og hafa neikvæð áhrif á sjóðstreymi, og við erum því vel í stakk búin til að takast á við þessar krefjandi aðstæður.“

Þá segir hann, spurður frekar um ummæli Gylfa, að honum hafi þótt það „ekki rétt“ að beina augum að einu félagi. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK