Stefna á Bandaríkjamarkað

Magnús og Júlíana opnuðu NORR11 hér á landi árið 2014.
Magnús og Júlíana opnuðu NORR11 hér á landi árið 2014. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Magnús Berg Magnússon tók við forstjórastöðunni hjá skandinavíska hönnunarhúsgagnafyrirtækinu NORR11 árið 2017. Fyrirtækið selur vörur sínar í 40 löndum en stefnir á Bandaríkjamarkað.

„Stefnan er á næstu árum að ráða sölufólk inn á Bandaríkjamarkað og vonandi koma upp vöruhúsi og vera með söluskrifstofur þar. Það er náttúrlega gríðarlega kostnaðarsamt að gera þetta rétt, að ráða rétta fólkið frá byrjun og setja þetta rétt upp,“ segir Magnús í ítarlegu viðtali á miðopnu ViðskiptaMoggans í dag.

Fyrirtækið leitar nú að fjárfestum til að leiða þá uppbyggingu en Magnús og kona hans, Júlíana Sól Sigurbjörnsdóttir, opnuðu verslun NORR11 hér á landi í lok árs 2014. Upphaflega gerðu þau hjónin, er þau bjuggu í New York, viðskiptaáætlun með það í huga að opna verslun NORR11 vestanhafs. Stofnendur fyrirtækisins töldu þá að í ljósi ungs aldurs NORR11 væri það ekki reiðubúið fyrir svo stórt skref og sköluðu þá niður viðskiptaáætlunina fyrir Íslandsmarkað.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK