Domino's í Bretlandi, Domino's Pizza Group, sem á og rekur pítsustaði Domino's á Íslandi, hefur ákveðið að hætta starfsemi utan landsteinanna og selja starfsemi veitingastaða sinna á Íslandi, í Noregi og í Svíþjóð.
Frá þessu er greint á vef Reuters sem og á norsku vefsíðunni E24. Berglind Jónsdóttir, markaðsstjóri Domino's á Íslandi, segir í samtali við mbl.is að Domino's á Íslandi viti af stöðunni en vísar á Domino's Pizza Group.
Í frétt Reuters segir David Wild, fráfarandi framkvæmdastjóri Domino's Pizza Group, að félagið sé ekki vel í stakk búið til þess að reka alþjóðlega keðju og hafi játað sig sigrað vegna taprekstrar.
Domino's Pizza Group eignaðist allt hlutafé í rekstrarfélagi Domino's á Íslandi, Pizza-Pizza ehf., í ágúst á þessu ári.
Samkvæmt ársreikningi Pizza-Pizza frá 2018 var hagnaður félagsins 455 milljónir króna.
Alþjóðlegar keðjur Domino's Pizza Group eru reknar með tapi og er staðan sögð sérstaklega erfið í Noregi, þar sem félagið rekur 57 pítsastaði undir merkjum Domino's.