„Samfélagsstyrkir Krónunnar eru veittir ár hvert til þeirra sem hafa jákvæð áhrif á uppbyggingu í nærsamfélögum Krónunnar og/eða hvetja til hollustu og hreyfingu barna. Í ár bárust 220 umsóknir og var heildarupphæð styrkjanna í ár sjö milljónir króna,“ segir í fréttatilkynningu frá Krónunni.
Ráðstefna grænkera, Krónumót HK í fótbolta og Aldingarður æskunnar eru á meðal þeirra verkefna sem hlutu styrki í ár.
Fyrra Krónumót HK í fótbolta fer fram í Kórnum um helgina og munu um þrjú þúsund börn taka þátt.
Hjördís Elsa Ásgeirsdóttir, markaðsstjóri Krónunnar.
Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
„Við erum alltaf jafn ánægð að sjá hversu margir eru að vinna að metnaðarfullum verkefnum í því skyni að bæta líf og heilsu barna, sem og þau sem eru að vinna að annarri jávæðri uppbyggingu í samfélaginu. Mörg þeirra verkefna sem við styrkjum í ár eru unnin í sjálfboðavinnu og það er ekki síst þess vegna sem við hjá Krónunni viljum leggja okkar [lóð] á vogarskálarnar við að halda þessum góðu verkefnum gangandi“, er haft eftir Hjördísi Elsu Ásgeirsdóttur, markaðsstjóra Krónunnar, í fréttatilkynningu.
Opið verður fyrir styrktarumsóknir fyrir næsta styrktarár á heimasíðu Krónunnar frá apríl til ágúst 2020.
Verkefnin sem fengu styrk í ár voru:
- FRAM í Reykjavík fyrir knattspyrnudeild barna
- Stjarnan í Garðabæ fyrir handknattleiksdeild barna
- HK í Kópavogi fyrir Krónumót yngri flokka karla og kvenna í knattspyrnu
- Sundfélag Hafnarfjarðar fyrir Krónumótið — sundmót barna
- Haukar í Hafnarfirði fyrir Special Olympics-æfingar körfuknattleiksdeildar Hauka
- Karatedeild Aftureldingar í Mosfellsbæ fyrir barnastarfið
- Blakdeild Aftureldingar í Mosfellsbæ fyrir úthlutun gefins endurskinsmerkja til grunnskóla nemenda í bænum
- Víkingur í Reykjavík fyrir barna- og unglingastarf
- ÍBV í Vestmannaeyjum fyrir barnastarfið
- Crossfit Eyjar fyrir Skólacrossfit
- Fimleikadeild Heklu á Hellu fyrir nýjum áhöldum
- Fimleikadeild Hamars Hveragerði fyrir fræðsludegi þjálfara og foreldra iðkenda deildarinnar um svefn og næringu barna og unglinga
- Hjálparstarf Kirkjunnar fyrir styrktarsjóð vegna tómstundaiðkunar barna og unglinga
- Ungmennafélagið Þjótandi á Selfossi fyrir frisbígolfvelli.
- Skátafélag Akraness fyrir ævintýragarð sem verður notaður í uppbyggjandi skemmtun og fróðleik, í útivist og ýmsa hreyfingu
- Heilsuleikskólinn Skógarás í Keflavík fyrir klifurvegg fyrir krakkana
- Suðurnesjadeild Garðyrkjufélags Íslands í Keflavík fyrir Aldingarð æskunnar til plöntukaupa
- Kjötsúpuhátíðin á Hvolsvelli fyrir aðfangakostnaði á hátíðinni
- Námsaðstoð Rauða krossins upp í aðstoð barna við lestur og nám á skólabókasöfnum
- Skíðaskóli Jennýjar á Reyðarfirði fyrir Stubbaskólanum, skíðaskóla fyrir börn.
- Björgunarsveitin Kyndill á Klaustri fyrir breytingu á bíl
- Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli fyrir unglingastarfið
- Støð í Stöð (Stöðvarfirði) fyrir aðfangakostnaði á bæjarhátíðinni
- Regnboginn lista- og menningarhátíð í Vík fyrir mat í menningarveislu hátíðarinnar
- Vegan heilsa í Reykjavík fyrir ráðstefnukostnaði
- Landvernd fyrir fræðslumyndbandi
- Hjólreiðafélagið Tindur fyrir krúttlegasta hjólamót landsins