Franska munaðarvörufyrirtækið LVMH hefur gengið frá samkomulagi við hluthafa í bandaríska skartgripafyrirtækinu Tiffany um kaup á því síðarnefnda. Kaupverðið er 16,2 milljarðar Bandaríkjadala, sem svarar til tvö þúsund milljarða íslenskra króna.
Þetta er stærsta yfirtaka LVMH í sögunni og mun auka hlutdeild fyrirtækisins í Bandaríkjunum til muna. Greiddir eru 135 Bandaríkjadalir á hlut í reiðufé eða alls 16,2 milljarðar dala.
Tiffany bætist þar í hóp þekktra vörumerkja innan vébanda LVMH. Má þar nefna Louis Vuitton, Dior og Moët & Chandon.
Tiffany var stofnað árið 1837 og höfuðstöðvar fyrirtækisins eru á fimmta breiðstræti í New York, við hlið Trump Tower. Vörumerkið er eitt það þekktasta þegar kemur að lúxus vestanhafs og þeir sem eldri eru muna eftir bók Truman Capote, Breakfast at Tiffany's, sem síðar varð samnefnd kvikmynd með Audrey Hepburn í aðalhlutverki árið 1961.
LVMH á fleiri skartgripafyrirtæki en þar má nefna Bulgari, Chaumet, Tag Heuer og Hublot.