Coolshop-samsteypan sem hefur á undanförnum misserum opnað leikfangaverslanirnar Kids Coolshop á Íslandi og opnar nú einnig Coolshop.is fyrir íslenskan markað, að því er segir í tilkynningu. Í henni segir fyrirtækið að Íslendingar geta verslað nákvæmlega sömu vörur og í Danmörku og að hægt sé að sækja vörurnar strax í Kids Coolshop verslanirnar eða fá þær sendar heim til sín.
„Við teljum að það sé þörf fyrir okkur á Íslandi. Með opnun Kids Coolshop verslananna höfum við fengið góða innsýn inn í verslunarhugarfar Íslendinga sem minnir um margt á það sem við þekkjum frá Danmörku. Við tökum það verkefni, að komast inná íslenskan markað, mjög alvarlega og erum auðmjúk í aðkomu okkar að markaðnum sem og viðskiptavinum,“ segir Jacob Risgaard, markaðsstjóri Coolshop.
Þá hefur verið lögð mikil vinna í að þýða vefverslunina yfir á íslensku ekki síst þar sem milljónir vara hafa verið í versluninni Coolshop.com, að því er segir í tilkynningunni. „Við fáum nú þegar fleiri þúsundir heimsókna frá Íslandi á netverslunina á hverjum degi, og það túlkum við sem svo að við séum samkeppnishæf og aðlaðandi,“ segir Risgaard.