Local opnar á N1

Jón Viðar Stefánsson, rekstrarstjóri þjónustustöðva N1, og Halldór E. Sigurðsson, …
Jón Viðar Stefánsson, rekstrarstjóri þjónustustöðva N1, og Halldór E. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Local. Ljósmynd/Aðsend

Veitingastaðurinn Local hefur opnað í þjónustustöð N1 á Ártúnshöfða og er þetta fimmti veitingastaður Local. Meðal annarra sem bjóða upp á veitingar á þjónustustöðvum N1 eru Serrano, Subway, Nam og Ísey skyrbar.

Í tilkynningu vegna opnunarinnar er haft eftir Jóni Viðari Stefánssyni, rekstrarstjóra þjónustustöðva N1, að N1 hafi lagt áherslu á að bjóða viðskiptavinum mikið úrval af mat og drykk og fagnaðarefni sé að „hollari valkostum fjölgi hjá okkur. Við erum afar ánægð með að Local sláist í hópinn og að þeir sem heimsækja okkur geti notið þeirra máltíða.“


„Við hlökkum mikið til samstarfsins við N1. Það er ánægjulegt að geta loksins boðið viðskiptavinum N1 Ártúnshöfða, ásamt íbúum og starfsfólki fyrirtækja þar í kring, upp á hollu og bragðgóðu salötin sem við erum þekkt fyrir,“ er haft eftir Halldóri E. Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Local, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK