Í framhaldi af samþykkt stjórnarfundar Valitors 30. des sl. hefur verið hafist handa við endurskipulagningu á félaginu til að styrkja kjarnastarfsemi þess og snúa við taprekstri. Breytingarnar valda því að starfsfólki Valitors fækkar á öllum starfsstöðvum fyrirtækisins. Ráðgert er að með þeim aðgerðum sem nú er ráðist í fækki starfsfólki um nálægt 60 manns. Jafnframt er gripið til almennra hagræðingaraðgerða til að treysta reksturinn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Þar segir jafnframt, að með þeim aðgerðum sem nú sé ráðist í fækki starfsfólki félagsins um nálægt 60, úr nærri 390 starfsmönnum í um 330. Þar með eru taldar stöður sem hafa losnað hjá félaginu og ekki er ráðið í að nýju. Breytingarnar taka til allra starfsstöðva fyrirtækisins.
„Alls er um að ræða 9 uppsagnir á Íslandi og hafa þær þegar tekið gildi. Aðrar mannabreytingar varða starfsstöðvar Valitor í Danmörku og Bretlandi. Á ofanverðu síðasta ári var starfsfólki Valitor fækkað um nærri 30 manns. Þannig nemur fækkun síðustu 6 mánuðina næstum 90 starfsmönnum. Samhliða mannaflabreytingum er hagrætt víða á öðrum sviðum starfseminnar, m.a. er verið að endursemja við birgja, draga saman í húsnæði og fækka vörum í þróun. Valitor er í söluferli þar sem fyrirhugað er að selja félagið í heild eða að hluta,“ segir í tilkynningunni.
„Markmiðið er skýrt, við ætlum að snúa við taprekstri og tryggja félaginu sterkan rekstrargrundvöll til framtíðar. Það er aldrei góður tími til að segja upp starfsfólki og sjá á bak hæfum samstarfsmönnum. Hins vegar leggjum við áherslu á að hefja nýtt ár með gjörbreyttum rekstrarforsendum. Með þessum aðgerðum ætlum við okkur að fara úr tapi yfir í rekstrarhagnað fyrir afskriftir og fjármagnsliði (e. EBITDA). Við erum að styrkja og þétta rekstur og kjarnaþjónustu félagsins á okkar mörkuðum og þar lítum við ekki síst til mikilvægis heimamarkaðsins þar sem við stöndum traustum fótum. Eftir róttækar og erfiðar breytingar horfum við bjartari augum fram á veg og munum sækja fram á ný. Þar vil ég sérstaklega benda á sóknarfæri varðandi samvinnu við öflug erlend fjártæknifyrirtæki á borð við Stripe, Klarna og Paymentsense þar sem samstarfslíkan okkar hefur sannað gildi sitt,“ segir Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitors, í tilkynningunni.
Þá segir, að með framangreindum skipulagsbreytingum muni draga úr fjárfestingarþörf og rekstrarkostnaði sem aftur hafi jákvæð áhrif á afkomu félagsins. Valitor verði eftir sem áður fjárhagslega sterkt, alþjóðlegt greiðslulausnafyrirtæki sem býður fjölbreytta þjónustu á sviði færsluhirðingar, greiðslugátta og útgáfu.