Ekki hægt að senda með Póstinum til Kína

Ástæðan fyrir þessu er að þau flugfélög sem þjónusta Póstinn …
Ástæðan fyrir þessu er að þau flugfélög sem þjónusta Póstinn eru hætt að fljúga til Kína. AFP

Ekki er hægt að senda sendingar til Kína með Póstinum en ástæðan fyrir þessu er að þau flugfélög sem þjónusta Póstinn eru hætt að fljúga til landsins vegna kórónaveirunnar sem á upptök sín í Wuhan í Kína, að því er félagið greinir frá í tilkynningu.  

„Því miður er þessi staða komin upp, það lá í loftinu í síðustu viku að það yrði mjög erfitt að halda uppi þjónustu til og frá Kína en við vonuðumst til þess að við myndum ekki þurfa að loka alveg fyrir póstflutninga þangað. Við getum í raun lítið gert þar sem okkar þjónustuaðilar eru hættir að taka við sendingum til landsins. Það er afar erfitt að segja til um hve lengi þetta ástand muni vara en við vonumst að sjálfsögðu til að það verði ekki lengi. Um leið og opnast fyrir möguleikann aftur munum við láta vita af því,“ segir Hörður Jónsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Póstsins, í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK