Bréf Icelandair hafa hækkað um 9,4% í verði það sem af er degi í Kauphöll Íslands. Frá áramótum hafa bréf félagsins hækkað um 19,21%.
Síðustu viðskipti með bréf félagsins voru á genginu 9 en lítil viðskipti eru á bak við hækkunina í morgun.
Icelandair birti uppgjör síðasta árs í gær og nam tap félagsins 7,1 milljarði króna og jókst úr 6,8 milljarða tapi árið á undan. Icelandair hefur því tapað tæpum 14 milljörðum króna á tveimur árum.