Aventura fær ferðaskrifstofuleyfi

Andri Már Ingólfsson.
Andri Már Ingólfsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Aventura, félag í eigu Andra Más Ingólfssonar, er komið með ferðaskrifstofuleyfi frá Ferðamálastofu. Félagið er að fullu fjármagnað og byrjar með eigið fé að upphæð 50 milljónir króna.

Aventura fékk á miðvikudag útgefið ferðaskrifstofuleyfi nr. 2020-007 frá Ferðamálastofu og er nú að klára síðasta undirbúning til að hefja rekstur.

Í fréttatilkynningu kemur fram að Aventura mun fyrst íslenskra ferðaskrifstofa opna algjörlega gagnvirka bókunarvél á vefnum, þar sem viðskipavinurinn getur búið til sína eigin pakkaferð og valið úr hagkvæmustu tilboðum á hverjum tíma til vinsælustu áfangastaða Íslendinga. Hvort sem um er að ræða sólarlandaferðir, borgarferðir eða til fjarlægra áfangastaða.

„Að auki geta viðskipavinir fundið hagkvæmustu fargjöld og hótelverð um allan heim, en Aventura er með samninga við yfir 600 flugfélög og getur í gegnum samninga við birgja boðið meira en 2 milljónir hótelherbergja um allan heim,“ samkvæmt fréttatilkynningu.

Sjá nánar á vef Aventura

Pri­mera Air, sem var í eigu Andra var úr­sk­urðað gjaldþrota árið 2018 og færði Ari­on banki niður tæp­lega þrjá millj­arða króna í ábyrgðum og lán­veit­ing­um vegna gjaldþrots flug­fé­lags­ins, að því er fram kom í árs­reikn­ingi bank­ans. Andri sagði í samtali við mbl.is í lok desember að tap Ari­on hafi raun­ar ekki verið þrír millj­arðar held­ur 1,8 millj­arðar sem komu til vegna ábyrgðar flug­véla­leiga fyr­ir Pri­mera Air. Pri­mera hafi ekki verið með aðra fyr­ir­greiðslu hjá bank­an­um.

Spurður hvort ekki sé of snemmt fyr­ir Andra að ráðast í stofn­un nýrr­ar ferðaskrif­stofu þegar svo stutt er frá gjaldþroti Pri­mera Air sagði hann í lok desember: 

„Pri­mera lokaði fyrst og fremst vegna þess að fyr­ir­tækið lenti í því óláni að fá ekki af­hent­ar vél­arn­ar sem það átti að fá frá Air­Bus. Pri­mera lenti því í svipuðu tjóni og Icelanda­ir hef­ur gert með MAX-vél­arn­ar og fjöldi annarra fé­laga sem hafa lent í gríðarlegu tjóni. Ég fékk ekki þá brú­ar­fjármögn­un frá Ari­on banka sem hefði bjargað fé­lag­inuenda kaus bank­inn að styðja við WOW air á þeim tíma.“

Andri bend­ir á að þótt Pri­mera Air hafi verið lokað hafi ferðaskrif­stof­ur sem tengd­ust fé­lag­inu haldið velli og tel­ur Andri að fall flug­fé­lag­ins eigi ekki að skyggja á rekst­ur þeirra sem hef­ur, að sögn Andra, verið til fyr­ir­mynd­ar ára­tug­um sam­an.

„Ég lagði inn gríðarlega fjár­muni til þess að bjarga ferðaskrif­stof­un­um og það er ánægju­legt að þau fyr­ir­tæki eru í rekstri í dag og ganga vel eins og þau hafa alltaf gert. Að Ari­on hafi ákveðið að taka yfir ferðaskrif­stof­urn­ar, þrátt fyr­ir að rekstri þeirra hafi verið bjargað með eig­in­fjár­fram­lagi frá mér, voru mik­il von­brigði. Mitt bak­land er ferðaskrif­stof­u­r­ekst­ur sem hef­ur verið far­sæll alla tíð. Það verður gam­an að halda áfram á þeirri braut með þeirri nýju tækni sem heim­ur­inn býður upp á í dag,“ sagði Andri Már í samtali við mbl.is í lok desember.

Andri stofnaði Heims­ferðir fyr­ir 27 árum og hef­ur komið víða við í rekstri ferðaskrif­stofa. Arion banki tók Heimsferðir yfir á síðasta ári. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK