Arion hagnaðist um 1,1 milljarð í fyrra

Höfuðstöðvar Arion banka í Borgartúni. Bankinn hagnaðist um 1,1 milljarð …
Höfuðstöðvar Arion banka í Borgartúni. Bankinn hagnaðist um 1,1 milljarð í fyrra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Arion banki hagnaðist um 1,1 milljarð króna á síðasta ári, en bankinn tapaði tæpum 2,8 milljörðum króna á síðasta ársfjórðungi ársins. Niðurfærsla eigna og erfiðleikar í rekstri dótturfélaga sem eru í söluferli hafa haft neikvæð áhrif á afkomuna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Arðsemi eigin fjár bankans var 0,6% á árinu 2019, samanborið við 3,7% á árinu 2018. Þessi afkoma bankans sem kynnt er í dag er í takt við afkomuviðvörunina sem bankinn sendi frá sér í síðasta mánuði. Afkoma bankans er rúmum 6,5 milljörðum lakari en hún var á árinu 2018.

Hagnaður af „áframhaldandi starfsemi“ bankans, og þá er átt við alla aðra hluta bankans en þau félög sem eru í söluferli, nam þó rúmum 14 milljörðum króna á síðasta á síðasta ári og 5,2 milljörðum á síðasta ársfjórðungi ársins, samkvæmt tilkynningu.

Eigið fé bankans nam 190 milljörðum króna um áramót, samanborið við 201 milljarð króna í árslok 2018. Í tilkynningu bankans segir að mikilvægt sé að minnka umfram eigið fé, til þess að bankinn hafi hæfilegt magn eigin fjár.

„Til samræmis við markmið bankans um að almennt eigið fé þáttar 1 (CET 1) sé í kringum 17%, greiddi bankinn arð og keypti eigin bréf fyrir samtals 12,4 milljarða króna á árinu 2019. Stjórn leggur til 10,0 milljarða króna arðgreiðslu á árinu 2020 eða sem nemur 5,5 krónum á hlut,“ segir í tilkynningu bankans.

Margt lofar góðu að mati bankastjórans

Bendikt Gíslason bankastjóri segir í tilkynningu bankans að margt sé í rekstri bankans sem lofi góðu varðandi framhaldið, þó félög sem bankinn er með í söluferli hafi reynst „þung í skauti á árinu.“

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion. mbl.is/Árni Sæberg

Einnig er haft eftir honum að vegna „hárra eiginfjárkrafna og skatta“ sé bankinn ekki samkeppnishæfur við lífeyrissjóði og erlenda banka þegar kemur að lánveitingum til stærri fyrirtækja.

„Arion banki mun því gagnvart þessum fyrirtækjum leggja höfuðáherslu á að veita faglega ráðgjöf og aðstoða þau við að finna hagstæðustu fjármögnun hverju sinni, en auðvitað leggja þeim til lánsfé þegar svo ber undir,“ ritar bankastjórinn í tilkynningu bankans.

Ávarp bankastjórans í heild sinni:

„Við sjáum þess merki á fjórða ársfjórðungi að þær skipulags- og áherslubreytingar sem ráðist var í undir lok þriðja ársfjórðungs skila árangri því Arion banki hagnast um 5,2 milljarða króna af áframhaldandi starfsemi á fjórðungnum, sem er besti fjórðungur ársins 2019. Vaxtamunur hefur hækkað og dregið hefur úr rekstrarkostnaði á sama tíma og bankinn hefur fengið endurgreidd óarðbær útlán og greitt upp dýra fjármögnun. Góður vöxtur er einnig í afkomu tryggingastarfsemi og höfum við miklar væntingar til áframhaldandi samstarfs við Vörð, viðskiptavinum okkar til hagsbóta. Það er því margt í rekstri bankans sem lofar góðu varðandi framhaldið. 

Félög sem bankinn er með í sölumeðferð reyndust hins vegar þung í skauti á árinu. Að teknu tilliti til neikvæðra áhrifa þeirra er hagnaður bankans á árinu 2019 aðeins 1,1 milljarður króna og tap er á fjórða ársfjórðungi. Valitor er eitt þessara félaga en undir árslok ákvað stjórn þess að ráðast í umfangsmiklar skipulagsbreytingar með það að markmiði að styrkja kjarnarekstur félagsins og draga úr fjárfestingarþörf. Áætlanir Valitor fyrir árið 2020 gera ráð fyrir að félagið skili jákvæðri afkomu fyrir afskriftir og fjármagnsliði. 

Eiginfjárstaða bankans er áfram mjög sterk og eitt af áhersluatriðum okkar nú er að ná fram hagstæðri fjármagnsskipan með útgáfu skuldabréfa sem flokkast sem eiginfjárþáttur 2 og viðbótar eigið fé þáttar 1, bæta notkun eigin fjár í rekstrinum og leggja aukna áherslu á starfsemi sem bindur minna eigið fé. Eigið fé er í raun skuld bankans við eigendur og er dýrasta fjármögnun bankans. Því skiptir miklu að hafa ekki meira eigin fé en þörf krefur. Endurkaupaáætlun var hrint í framkvæmd síðla árs 2019 og arður greiddur út á árinu. Jafnframt stendur til að leggja fyrir aðalfund bankans í mars n.k. tillögu um frekari útgreiðslu arðs. Lækkun eiginfjár er mikilvægur liður í að bankinn nái markmiðum sínum um 10% arðsemi eiginfjár enda eru vaxtartækifæri sem bjóða ásættanlega arðsemi takmörkuð í lækkandi vaxtaumhverfi.

Annar mikilvægur þáttur í að ná viðundandi arðsemi snýr að lánveitingum til stærri fyrirtækja. Sökum hárra eiginfjárkrafna og skatta er bankinn í raun ekki samkeppnisfær við lífeyrissjóði og erlenda banka þegar kemur að lánum til stærri fyrirtækja. Arion banki mun því gagnvart þessum fyrirtækjum leggja höfuðáherslu á að veita faglega ráðgjöf og aðstoða þau við að finna hagstæðustu fjármögnun hverju sinni, en auðvitað leggja þeim til lánsfé þegar svo ber undir. Hvað varðar lánveitingar til einstaklinga og lítilla og meðal stórra fyrirtækja er stefna bankans óbreytt og þrátt fyrir áherslu á arðsemi lánasafnsins umfram vöxt þá var á fjórða ársfjórðungi góður gangur í nýjum útlánum sem námu alls 24 milljörðum króna á fjórðungnum, þar af voru lán til einstaklinga um 10 milljarðar króna.

Stjórn Arion banka samþykkti nú í desember metnaðarfulla umhverfis- og loftlagsstefnu og markmið fyrir næstu ár. Í stefnunni felst að við sem störfum hjá bankanum viljum leggja okkar af mörkum til að Ísland geti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart Parísarsamkomulaginu og öðrum innlendum og erlendum loftlagssáttmálum. Markmið okkar á árinu 2020 er að meta lánasafn bankans út frá grænum viðmiðum og setja okkur markmið í þeim efnum. Munum við einnig í auknum mæli beina sjónum okkar að fjármögnun verkefna sem snúa að sjálfbærri þróun og grænni innviðauppbyggingu. Að auki munum við í mati okkar á birgjum gera kröfu um að þeir taki mið af áhrifum sinnar starfsemi á umhverfis- og loftlagsmál.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK