Grænt gagnaver hýsir upplýsingatæknikerfi Premis

Ljósmynd/Vilhelm Gunnarsson

Premis hefur samið við Vodafone um hýsingu á upplýsingatæknikerfum sínum í nýju grænu hátæknigagnaveri, Reykjavík DC við Korputorg.

Fram kemur í tilkynningu, að sérhæfing Reykjavík DC snúi að öryggis- og umhverfismálum þar sem áhersla sé á sérsniðna þjónustu fyrir viðskiptavini.

Gagnaverið nýtir rafmagn úr 100% endurnýjanlegum orkugjöfum og uppfyllir Tier3-staðal. Vodafone er einn af eigendum Reykjavík DC, að því er fram kemur í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK