Ákveðið hefur verið að fresta ársfundi Landsvirkjunar um óákveðinn tíma vegna kórónuveirunnar. Fundurinn átti að fara fram á morgun, en jafnan sækja hann nokkur hundruð manns.
Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að þar sem starfsemi fyrirtækisins sé mikilvægur hluti af innviðum samfélagsins hafi verið ákveðið að grípa til þessara varúðarráðstafana.