Tilkynning frá fyrrverandi stjórnarmönnum WOW

mbl.is/​Hari

Fyrrverandi stjórnarmenn WOW air hafa sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar fréttar Morgunblaðsins í morgun um framburð stjórnarmanna fyrir héraðsdómi í gær, en þar kom meðal annars fram að þau töldu félagið gjaldfært allt þar til það var lagt inn til gjaldþrota­skipta 28. mars í fyrra. 

Tilkynninguna í heild sinni má sjá hér að neðan. Þess skal getið að ritstjórn stendur við frétt sína, sem lesa má með því að smella á tengilinn hér að ofan.

Tilkynning frá fyrrverandi stjórnarmönnum WOW air

Í gær voru fyrrum stjórnarmenn, fjármálastjóri og yfirlögfræðingur Wow air vitni í máli slitabús WOW air gegn Títan fjárfestingafélagi.

Í Morgunblaðinu í dag (föstudagurinn 6 mars) má finna frétt frá hluta þinghaldsins sem gefur villandi mynd af vitnum og þinghaldinu. 

Fyrirsögnin "Skoðuðu ekki uppgjör” er meiðandi 

Stjórn var spurð út í uppgjör ársins 2018 og uppgjör fyrir janúar og febrúar 2019. Um var að ræða vinnugögn starfsmanns sem ekki voru fullkláruð og því ekki lögð fyrir stjórn.

Stjórn og stjórnendur funduðu ítrekað á þessum tíma og var áhersla lögð á að tryggja flugöryggi, greiða forgangskröfur og vinna þau verkefni er tengdust sölu á félaginu. Sérfræðingar á vegum Samgöngustofu funduðu auk þess reglulega með stjórn og stjórnendum um fjárhagslega stöðu félagsins og aldrei var ágreiningur um fjárhagsstöðu þess. 

Rangt að engar fundargerðir hafi verið haldnar

Það er alrangt að stjórnarmenn hafi ekki getað gefið skýringar á því hvers vegna fundargerðir fyrir árið 2019 fundust ekki í skjalagátt stjórnar.

Stjórnarmenn gáfu skýringar á því. Fjöldi funda voru haldnir, ritari stjórnar félagsins hélt fundargerðir og stjórnarmaður félagsins í hans fjarveru. Hinsvegar gafst ekki færi á að ganga endanlega frá formlegum fundargerðum og undirrita þær fyrir gjaldþrot félagsins. Stjórnendur og stjórn félagsins gáfu á þessu skýringar og er það alls ekki þannig líkt og lesa má í Morgunblaðinu í dag að engar skýringar hafi verið gefnar.  Þá var yfirlögfræðingur félagsins jafnframt kallaður til sem vitni en hann var jafnframt ritari stjórnar og gaf hann sömu skýringar og staðfesti tilvist framangreindra fundargerða.

Fyrrum stjórnarmenn Wow air.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK