Arion banki kemur til móts við þá einstaklinga sem sjá fram á erfiðleika við að standa skil á afborgunum íbúðalána vegna kórónuveirunnar. Verður þeim boðið að gera hlé á afborgunum lána í allt að þrjá mánuði til að auðvelda þeim að takast á við fyrirsjáanlegar ákvarðanir.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.
Þar segir jafnframt að ef þörf sé á frekari sveigjanleika verði farið yfir málin með hverjum og einum viðskiptavini.