Fullt var út úr dyrum og gott betur en það hjá versluninni Hreysti í morgun þegar ný sending af lóðum og öðrum líkamsræktarvarningi barst í hús. Löng röð myndaðist fyrir utan verslunina og svo virðist sem tveggja metra reglan hafi gleymst um stund þegar hreyfiþyrstir flykktust að til að næla sér í ýmiss konar æfingabúnað.
Líkt og ViðskiptaMogginn greindi frá í fyrir um tveimur vikum hefur sala á heilsuræktarvörum hjá Hreysti tekið minn kipp eftir að stjórnvöld tilkynntu um samkomubann á Íslandi. Eftir að hert samkomubann tók gildi 24. mars og líkamsræktarstöðvar lokuðu hefur salann aukist enn frekar.
Í morgun barst ný sending í verslunina, en til stóð að hún kæmi fyrr í vikunni. Vegna bilunar í krana hjá Eimskip var ekki unnt að afgreiða sendinguna fyrr en í dag. Blaðamaður mbl.is reyndi að ná tali af markaðsstjóra Hreysti í morgun en hafði ekki erindi sem erfiði þar sem augljóslega er brjálað að gera.